VIÐ BJÓÐUM BÍLA Á BETRA VERÐI
Bíllinn minn er vörumerki í eigu Úranus ehf. Bíllinn minn hefur þá sérstöðu að starfsemin fer einungis fram á netinu og í gegnum síma. Hægt er að ná í okkur símleiðis í síma 5206500 frá morgni til kvölds, alla daga vikunnar, í spjalli á Messenger eða í gegnum netfangið [email protected]. Við flytjum inn bíla fyrir okkar viðskiptavini skv. pöntunum og leggjum ríka áherslu á að bjóða bíla á lægra verði en gengur og gerist. Nýja bíla seljum við með sömu ábyrgð og fylgir þeim frá framleiðendum. Nýlegir bílar frá okkur koma einnig með ábyrgð, misjafnlega langri eftir því hvaða árgerð bíllinn þinn er. Við tökum að sjálfsögðu gamla bílinn þinn uppí líka!
Við höfum starfað í bílainnflutningi og bílasölu síðan árið 1996 og erum með þeim elstu á markaðnum sem annast bílainnflutning fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Markmið okkar hafa ávallt verið að bjóða betri verð og sjá til þess að okkar viðskiptavinir séu ánægðir með bílana sína. Því við viljum gjarnan fá viðskiptavini til okkar líka næst þegar stendur til að kaupa nýjan bíl eða uppfæra.
Fjöldi ánægðra kaupenda hafa prófað að panta eða kaupa bíla hjá okkur og við sjáum þessa traustu viðskiptavini koma til okkar aftur og aftur. Bíllinn minn sér um að finna bílinn þinn og við sjáum til þess að kaupin verði ánægjuleg!
ÞETTA GERUM VIÐ:
HVERS VEGNA BÍLLINN MINN?
Reynsla og þekking síðan 1996
Fjárhagslega traust fyrirtæki
Ferlið er einfalt og þægilegt
Við erum sérfræðingar í bílum
Við erum sérfræðingar í bílainnflutningi
Þú færð líklega hvergi betri verð
Öflugt tengslanet erlendis og hérlendis
Sömu ábyrgðarskilmálar og hjá umboði
NÝJUSTU FRÉTTIR

Jeep Wrangler 4xe
02/06/2025 / 0 CommentsJeep Wrangler 4xe: Ævintýrið byrjaði með Willys Jeep Wrangler hefur lengi verið táknmynd fyrir torfæruakst [...]
Nýr Blazer EV RS
01/15/2024 / 0 CommentsChevrolet hefur kynnt Blazer EV RS, nýjan rafknúinn sportjeppa sem sameinar sportlegt útlit með rafmagnsafköst [...]