Flokkar:
Þetta er stór og mikil spurning en svarið fer yfirleitt eftir bæði fjárhag og aðstæðum. Gott er að miða bílakaup eftir því hvernig þínum aðstæðum er háttað og miðað við hvað þú ætlar að eiga bílinn lengi. Taka þarf tillit til þátta eins og fjölskyldustærðar, fjárhags, rekstrarkostnaðar við rekstur bílsins, vegaaðstæðum, hvar þú býrð og lengd ferða ásamt fleiru. Einnig þurfa margir að huga að aðgengi. Þú vilt líklega geta stigið inn og út úr bílnum vandkvæðalast. Sértu stirð/ur eða komin/n á aldur þá er þetta ennþá mikilvægara atriði.
Útsýni, þú vilt geta séð vel út úr bílnum og etv. skiptir hæð bílsins máli fyrir þig, því hærra uppi sem þú situr, því betra er yfirleitt útsýnið úr bílnum.
Þægindi er annar þáttur sem er mikilvægur fyrir flesta bílaeigendur. Þú vilt t.d. að bíllinn sé þannig að þú þreytist sem minnst við að keyra hann, sérstaklega ef aka þarf langar leiðir reglulega. Ýmis konar aukabúnaður getur létt fólki lífið eins og t.d. sóllúga, regnskynjarar, hiti í sætum, loftkæling ofl. Þá vilja flestir sjálfskipta bíla í dag frekar en beinskipta, þótt ennþá sé stór hópur sem sækist eftir beinskiptum bílum og þá sérstaklega sportbílum. Þá skipta stjórntæki, skjáir, hljómtæki, bluetooth, snertilaust aðgengi ofl. töluvert miklu máli fyrir kaupendur nýrra bíla sem gera kröfu um nútíma þægindi.
Þú þarft einnig að ákveða hvar þú staðsetur þig m.t.t. loftslagsmála og flestir vega þá afstöðu gjarnan í samhengi við rekstarkostnað bílsins. Rafbílar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár og valda t.d. minni mengun en flestir aðrir bílar.
Öryggi er oft á tíðum stór þáttur þegar kemur að bílakaupum, sérstaklega þegar fjölskyldubílar eiga í hlut. Öryggisþættir eru fjölmargir eins og t.d. ISOFIX festingar fyrir barnastóla, sterkleiki bílsins, loftpúðar og bremsur. Allt þetta skiptir miklu máli ásamt því hversu örugg/ur þú vilt vera í vetrarumferð og hálku. Þá þarf einnig að huga að því hvort bíllinn skuli vera fjórhjóladrifinn eða ekki, skoða veghæð, vetrarfærni bílsins ásamt ljósum, rúðuhita og meira að segja speglahita sem getur sparað fólki sporin þegar skafa þarf af bílum yfir vetrartímann.
Hafðu samband við okkur í síma 5206500 og við finnum bílinn þinn!
Já við erum að því, alltaf. Við einfaldlega flytjum ekki inn bíla sem við teljum að eigi ekki erindi við markaðinn. Við náum verðunum niður með hagvkæmum flutningskostnaði, lágri álagningu og oftar en ekki erum við að flytja inn töluvert magn af bílum í einu. Ef þú hefur efasemdir um verðin okkar, þá hvetjum við þig til að gera einfaldan verðsamanburð, fá tilboð frá okkur og bera saman við sambærilega bíla frá bílaumboðunum eða öðrum bílasölum.
Já, allir nýir og nýlegir bílar frá okkur koma með alþjóðlegri verksmiðjuábyrgð sem gildir að fullu leiti á Íslandi eins og annars staðar. Ef þú ert hins vegar að kaupa gamlan bíl þá tökum við einungis ábyrgð á skoðuninni okkar og því sem í henni stendur.
Já, Bíllinn minn er vörumerki í eigu Úranus ehf og er fjárhagslega sterkt fyrirtæki. Við erum t.d. með merkinguna Framúrskarandi fyrirtæki 2023 sem Lánstraust gefur út og tekur mið af greiðslugetu og fjárhagslegum styrk. Velta okkar á síðastliðnu ári var 4.4 milljarðar, við erum eitt af 300 stærstu fyrirtækjum á Íslandi og seldum 487 bíla árið 2023.
Það gerist auðvitað að bílar geta bilað eftir kaup, sérstaklega hvað varðar eldri bíla. Ef nýr bíll bilar á ábyrgðartíma þá er ekkert annað en hringja í okkur og við aðstoðum þig og veitum ráðgjöf varðandi ábyrgðarviðgerðir, sjáum til þess að ábyrgðarskilmálar séu uppfylltir. Ef gamall bíll bilar stuttu eftir kaup þá gerir þú það sama, hringir í okkur og við skoðum málið. Ef forskoðun hjá okkur hefur ekki greint vandann og hann er óvæntur þá lagfærum við bílinn og komum honum aftur til þín í lagfærðu ástandi.
Já þú getur alltaf sett gamla bílinn þinn upp í nýjan eða notaðan. Við verðmetum bílinn og tökum hann upp í hvort sem er nýjan bíl, nýlegan bíl eða eldri bíl sem þig langar í.
Skrifstofa fyrirtækisins er í Hegranesi 21 í Garðabæ. Öll þjónusta okkar við svörun til viðskiptavina fer þó einungis fram símleiðis eða í gegnum tölvupósta og netið. Þetta gerum við til að spara kostnað sem að endingu leiðir til betra verðs á bílnum þínum. Við erum með símann opin alla daga vikunnar, frá 8 - 19 virka daga og laugardaga og frá kl. 10 til 14 á sunnudögum. Við svörum tölvupósti og Messenger skilaboðum einnig á sama tíma.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Morbi nibh libero,
consequat sit amet nisl vitae, suscipit gravida mi. Nam auctor viverra
sodales. Quisque posuere tincidunt convallis. Ut viverra neque non diam
tempor, id tincidunt mauris cursus. Donec suscipit mattis viverra. Cras sit
amet odio sit amet dui aliquam tempus a ultrices felis. Proin sed imperdiet
ipsum, ultrices posuere leo.
Duis facilisis dapibus enim, ac venenatis nibh mattis in. Cras eu condimentum lacus, ac ultricies leo. Nunc sodales ipsum a suscipit.
Mauris tincidunt rutrum auctor. Vivamus a nunc ac augue scelerisque dapibus ut sed augue. Pellentesque fermentum orci in velit pharetra, non lobortis sapien suscipit. Aenean sem nulla, dignissim et bibendum et, consequat in nibh.
Nam sollicitudin neque eu nibh pharetra mollis. Mauris in nisi elit. Maecenas at metus rhoncus, facilisis tellus at, pretium orci. Vivamus consectetur sem eget neque dignissim, sit amet sodales urna mattis. Vivamus ut semper dolor. Suspendisse tempus, dolor vel eleifend vestibulum, nulla eros elementum ligula, ac bibendum mi ipsum quis felis. Donec adipiscing iaculis sapien nec porta. Aliquam tellus leo, posuere ut magna porta, auctor adipiscing massa. Maecenas sem mi, vestibulum id lectus non, placerat rhoncus dui.
Konstantín Mikaelsson er eigandi fyrirtækisins, Emil Ólafsson er stjórnarformaður, framkvæmdastjóri er Georg Mikaelsson.
Áður en þú kaupir bíl þá er kannað hvernig lán verður sett á hann, ef um bílalán er að ræða. Þá er venjan að greidd er útborgun áður en bíllinn er fluttur til landsins sem nemur mismuni á láni og eftirstöðvum m.v. heildarverð bílsins. Sé um staðgreiðslu að ræða og ekkert bílalán þá er venjan að kaupandi greiði kostnaðarverð bílsins án flutningsgjalda, tolla og skatta og annara gjalda.